Jæja, núna er ég búinn að vera í Perú í næstum 6 vikur. Ég trúi því samt varla að ég sé búinn að vera svona lengi, tíminn flýgur frá mér. Það er ýmislegt búið að gerast síðan síðast, enda langur tími síðan síðast. Ég ætla að segja frá því helsta sem hefur á daga mína drifið.
Helgina 23-25 sept. var mikið um að vera.
Á föstudeginum var Día de la juventud (dagur ungdómsins) og í tilefni þess var skóladagurinn með öðruvísi sniði en venjulega. Dagurinn byrjaði á English Contest og þar sem enskukunnátta perúbúa er ekki upp á marga fiska hefði verkefnið vel hæft 5. eða 6. bekk í grunnskóla á Íslandi, sem sagt frekar auðvelt. Eftir keppnina var messa í skólaportinu. Ég held að presturinn hafi verið frekar fyndinn því á fimm mínútna fresti fór hláturbylgja um portið. Ég skildi að sjálfssögðu ekki brandarana en reyndi að hlæja með eftir bestu getu. Eftir messu bauð skólinn upp á all-you-can-eat hlaðborð af ávöxtum og við erum ekki bara að tala um þetta venjulega; epli, appelsínur og banana, heldur allskonar litríka ávexti sem ég hef aldrei á ævinni séð, hvað þá smakkað. Þeir voru samt mjög góðir. Þegar allir höfðu borðað nægju sína af gómsætum S-Amerískum ávöxtum var komið að aðal fjörinu: Gran Gymkana! Þetta gekk sem sagt þannig fyrir sig að það var keppni í einhverjum hlægilegum greinum milli bekkja í hverjum árgangi. Keppnirnar voru mjög skemmtilegar og þeir sem ekki tóku þátt (tveir úr hverjum bekk tóku þátt) lágu í hláturkrampa á hliðarlínunni, bókstaflega. Um kvöldið var svo fiesta í skólanum. Þar var mikið dansað og ég lét mig að sjálfssögðu ekki vanta á dansgólfið ;)
Á laugardeginum fór ég með öllum AFS hópnum í Trujillo að skoða minjar frá siðmenningum fyrir tíma Inkanna. Það sem stóð upp var Chan Chan svæðið. Þar skoðuðum við höll nr. 8 af 9. Þetta gekk sem sagt þannig fyrir sig að þegar nýr leiðtogi tók við ríkinu varð hann að gjöra svo vel að byggja sér nýja höll til að móðga ekki leiðtogann þar á undan. Chan Chan var borg á 20 ferkílómetra svæði á blómaskeiði Chimú siðmenningarinnar frá um 850 e.Kr. til um 1470 e.Kr. þegar Inkarnir komu í heimsókn. Höll nr. 8 sem við skoðuðum er stærsta höllin á svæðinu og þar hefur varðveist töluvert af upprunanalegum skreytingum (sjá myndir á fecebook). Eftir Chan Chan fórum við að skoða Huaca de la luna (Tunglmusterið) sem bar byggt á tímum Moche siðmenningarinnar sem síðar varð að Chimú. Huaca de la luna er gríðarstórt musteri byggt til heiðurs tunglguðinum sem var þeim mjög mikilvægur. Um kvöldið fór ég svo út að borða með fjölskyldunni.
Á sunnudeginum fórum við aftur öll saman en nú var ferðinni heitiðtil El Brujo þar sem fleiri musteri og hallir frá tímum Moche er að finna. Við skoðuðum Huaca Cao musterið sem talið er að hafa verið byggt á tímabilinu 1-500 e.Kr. Það sem er kannski merkilegast við Huaca Cao er að þar fannst múmía Señoru Cao sem ríkti yfir Moche veldinu. Múmían fannst í heilu lagi með beinagrind, húð og öllu því gulli og skartgripum sem voru grafnir með henni. Þetta er allt til sýnis á Museo Cao við hliðina á Huaca Cao sem við skoðuðum líka.
Sunnudaginn 2. október var Festival de la Primavera (Vorhátíðin) í Trujillo. Það er frekar furðulegt að vera að fagna vorinu í október en það er svona að vera skiptinemi, hlutirnir eru í flestum tilfellum ekki eins og venjulega. Við Carolina systir mín fórum að horfa á Corso de la Primavera. Skrúðganga af stærstu gerð með dönsurum, fegurðardrottningum og tónlist. Bærinn var algjörlega stappaður af fólki og mikið af túristum koma á þessum tíma til að upplifa þessa hátíð sem Trujillo er þekkt fyrir.
Föstudaginn 7. október var landsleikur milli Perú og Paraguay. Það fer allt á annan endann í Perú þegar landsliðið í fótbolta er að fara að spila. Allar auglýsingar innihalda fólk í landsliðstreyjum, þjóðarstoltið er mjög mikið. Það er varla fjallað um annað í fréttunum, lífið snýst bara um leikinn sem er framundan. Ég lét að sjálfsögðu mitt ekki eftir liggja og keypti mér landsliðstreyju til að vera með. Leikurinn fór 2-0 fyrir Perú, Jeii! Seinna um kvöldið fór ég með Carolinu og tveimur vinum hennar á El Estribo sem er svona salsaklúbbur. Þar kemur fólk saman og dansar salsa, cumbia og marengue fram á rauða nótt, mjög gaman :)
Laugardaginn 8. október fórum við fjölskyldan með combi (lítill strætó) klukkutíma upp í fjöllin frá Trujillo á eins konar sumarleyfisstað með veitingastað, sundlaug, blakvelli og fótboltavelli. Við spiluðum blak, skelltum okkur í laugina og borðuðum svo cuy (naggrís) endilega googlið cuy, ekki það girnilegasta í heimi en bragðast ágætlega. Þetta var mjög góður dagur í sólinni.
Þriðjudaginn 11. október var mér boðið í hádegismat til fjölskyldu Can, þar sem ég var í viku í upphafi dvalarinnar. Við borðuðum góðan mat og eftir matinn fór ég með allri fjölskyldunni til Huanchaco. Þar spiluðum við blak á ströndinni og gerðum tilraun til að veiða á bryggjunni. Seinni partinn var landsleikur í fótbolta milli Perú og Chile, hann fór 4-2 fyrir Chile... Nú keppast allir helstu fjölmiðlar landsins við að kenna einhverjum öðrum en liðinu sjálfu um tapið.
Laugardaginn 15. október fór ég með pabba mínum til Virú, lítils bæjar í um klukkustundar fjarlægð frá Trujillo. Þar fengum við okkur göngutúr, fórum á markaðinn og fengum okkur önd á veitingastað í bænum. Um kvöldið fórum við svo öll fjölskyldan út að borða á Veitingastaðnum. Það er veitingastaður sem mér skilst að þau séu búin að vera að fara á í 15 ár. Þau eru tryggustu viðskiptavinirnir.
Ég er farinn að æfa marinera á þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum. Marinera er perúskur dans og Trujillo er svona hálfgerð höfuðborg marinera. Ég ætla svo á miðvikudaginn að fara á fyrstu æfinguna mína með skólaliðinu í frjálsum.
Nokkur svona almenn atriði sem mig langar að segja frá:
Strætókerfið í Perú er mjög óskipulagt en samt í rauninni algjör snilld. Það er ekki nein tímatafla, strætóarnir koma bara þegar þeir komast en það er samt allt í lagi af því að það eru svo margir, það er alltaf einhver á leiðinni. Þetta eru samt varla strætóar, þetta eru pínulitlir 10 manna bílar. Venjulegt fargjald er 1 nuevo sol eða 40 krónur en fyrir þá sem eru í skólabúningum eru það 50 centimos eða 20 krónur. Strætó á Íslandi ætti að taka sér þessa gjadskrá til fyrirmyndar!
Á mjög mörgum heimilum í Perú er ekkert heitt vatn, svoleiðis er það hjá mér. Það þýðir að sturtan er íííísköld. Til að byrja með ætlaði ég varla að þora að fara í sturtu. Núna er það samt að lagast, ég er næstum hættur að skjálfa. Fjölskyldan mín er samt svo yndisleg að hún ætlar að koma heitu vatni á sturtuna hjá mér. Ég get ekki sagt að ég hlakki ekki til að fara í aðeins volga sturtu.
Umferðin í Perú er brjáluð. Það er í reglum AFS að við megum ekki stjórna vélknúnu ökutæki á meðan á dvölinni stendur og ég skil það bara mjög vel! Þó það mætti myndi ég ekki setja sjálfan mig í þá lífshættu að keyra um göturnar hérna. Það eru alveg línur á götunni sem skiptir henni í akreinar en það fer bara enginn eftir þeim, það reyna allir að troðast eins og hægt er til að vera aðeins á undan næsta manni. Það er mikil áhersla lögð á að þeir sem sitja frammí séu í bílbelti en yfirleitt eru ekki belti aftur í. Það er heldur ekkert vandamál ef farþegarnir eru aðeins fleiri en sætin í bílnum, þá er bara troðið. Ég taldi einu sinni 7 manneskjur stíga út úr fimm manna leigubíl og þá er bílstjórinn ekki talinn með.
Ég vona að þið hafið haft gaman af.
¡Hasta luego!
PS. Endilega smellið einu commennti :)
Velkomin á síðuna mína! Ég er að fara sem skiptinemi til Perú í eitt ár og þessa síðu bjó ég til svo þið getið fylgst með dvölinni minni þar.
mánudagur, 17. október 2011
mánudagur, 19. september 2011
Hola a todos!
Nú er rúm vika frá síðasta bloggi og tímabært að búa til annað.
Á mánudaginn fór ég með Vila í skólann minn. Tilgangur ferðarinnar var tvíþættur. Annars vegar að koma Sonju frá Þýskalandi í skólann og hins vegar að finna skólabúning fyrir mig. Það var ekkert mál að fá skólastjórann til að taka við Sonju en það gekk ekki alveg eins vel með að finna skólabúning. Eins og þið kannski vitið þá er S-Amerískt fólk í flestum tilfellum ekki svo hávaxið. Það var því lítið um föt sem pössuðu á mig. Ég gat þó fundið stuttbuxur og stuttermabol fyrir íþróttatíma. Seinni part mánudagsins var fundur heima hjá Vila með öllum skiptinemunum á svæðinu og fjölskyldum þeirra. Eftir fundinn fór ég heim með fjölskyldu Kan frá Tælandi. Alida sem ég var hjá býr bara ein og getur ekki komið mér í skólann á morgnana. Á heimilinu hennar Kan búa Jorge (pabbinn), Patricia (mamman), Rosa (systir - 15 ára), Melanie (systir - 11 ára) og Francesco (bróðir - 9 ára). Það er gott að vera kominn til fjölskyldu, meira líf á heimilinu.
Á miðvikudaginn var fyrsti dagurinn í skólanum. Það var eiginlega frekar crazy! Fyrir það fyrsta þá eru allir í skólabúningum. Mér leið svolítið eins og ég væri í Hogwarts. Skólabúningar eru samt frekar sniðugir. Maður þarf aldrei að hugsa um í hverju maður ætli að fara, það er ekkert val. Í ljósi þess að ég er hvítur og hávaxinn þá leið mér svolítið eins og dýri í dýragarði þarna. Allir voru að stara á mig og spyrja mig spurninga eins og: Hvað heitirðu? Hvaðan ertu? Hvar í ósköpunum er Ísland? Þetta var samt bara gaman og allir ótrúlega vingjarnlegir. Landafræðitíminn var frekar fyndinn. Við eyddum öllum tímanum í að horfa á youtube-myndbönd um hvernig múslimar eru að taka yfir heiminn með því að eignast mikið af börnum. Kennarinn, Alfredo, hefur greinilega miklar áhyggjur af þessu (ég skildi myndböndin af því að það var enskur texti).
Á fimmtudaginn var einhver uppákoma. Allir fjórðubekkir (ég er í 4.A) komu saman í samkomusalnum í skólanum og allir byrjuðu að syngja. Þegar þau voru búin að syngja sama lagið svona 4-5 sinnum fóru allir aftur í stofurnar sínar og dagurinn hélt áfram. Ég held að þetta hafi verið æfing fyrir einhverja keppni en það er ekki staðfest... Á leiðinn heim úr skólanum stoppuðum við hjá manni sem var að selja ananas (piño) úti á götu. Þetta var án efa besti ananas sem ég hef smakkað. Ávextirnir hérna eru almennt mjög góðir. Þar sem drykkjarvatn er frekar dýrt drekka Perúbúar mikið af ávaxtadjús og þá er ég ekki að tala um svona fernudjús sem mauður kaupir í Bónus heldur djús úr ferskum ávöxtum sem er búinn til heima. Mjög góðir.
Ég skil frekar lítið af því sem gerist í skólanum. Kennararnir tala og tala á hraðri spænsku og ég sit bara og læt líta út fyrir að ég viti hvað sé í gangi. Það er samt bara eðlilegt og kemur allt með tímanum :)
Á föstudaginn var DJ keppni í skólanum eftir skóla. Öllum nemendunum var safnað saman í portinu og svo kom fulltrúi frá hverjum árgangi og DJ-aði. Frekar fyndið að vera í trúarbragðatíma aðra stundina og svo á DJ keppni hina. Flippaður skóli.
Á laugardagskvöldið fór ég með fjölskyldunni á Plaza de Armas, aðaltorg Trujillo (sjá mynd).
Það er mjög gaman að koma niður í miðbæinn. Fullt af flottum byggingum frá nýlendutíma Spánverja, fullt af fallegum styttum og ýmislegt að gerast. Þegar við vorum að rölta um torgið tóku nokkrir söngelskir háskólanemar í sérstökum búningum sig til og byrjuðu að syngja og spila fyrir okkur. Þeir spiluðu allskonar þjóðleg perúsk lög. Á öðrum stað á torginu voru nokkrir strákar að breika. Eftir að hafa rölt um miðbæinn fórum við út að borða á stað sem býður upp á perúska kjúklingarétti, mjög gott :)
Í gær fórum við í kirkju, nánar tiltekið gulu dómkirkjuna sem þið sjáið á myndinni hérna fyrir ofan. Hún er fallega að utan en mikið fallegri að innan. Eftir messu fórum við heim og slöppuðum af restina af deginum.
Þetta er svona það helsta sem hefur á daga mína drifið undanfarið :)
Chao!
sunnudagur, 11. september 2011
Hola todos!
Ég var búinn að lofa að vera duglegur að blogga þannig að það er best að byrja...
Ferðalagið frá Íslandi gekk vel. Við Guðbjartur hittumst í Leifsstöð og tékkuðum okkur saman inn. Svo fengum við okkur að borða og eitthvað svona sem maður gerir á flugvöllum. Ferðinni var heitið til New York (Nueva York). Þegar við lentum í NY eftir 6 tíma flug (hélt það ætti að vera 5 tímar) þá beið okkar endalaus röð til að komast að útlendingaeftirlitinu. Við biðum örugglega í tæpa 2 tíma í þyngsta lofti í heimi, með lágt til lofts og svo var allt troðið af sveittum útlendingum í þokkabót (við vorum ekki sveittir útlendingar). Þegar ég var búinn að láta starfsmann útlendingaeftirlitsins fá fingraför af öllum fingrum og hann búinn að taka af mér mynd gátum við loksins náð í töskurnar og ferðast með lest frá Terminal 7 til Terminal 4. Flugvélin sem við flugum með til Lima var frekar stór. Að minnsta kosti stærsta flugvél sem ég hef ferðast með. Flugið til Lima tók rétt rúma 8 tíma en ég svaf eiginlega alla leiðina.
Þegar við lentum í Lima tóku tveir sjálfboðaliðar frá AFS á móti okkur og okkur var sagt að þrír krakkar frá Bandaríkjunum hefðu verið í sama flugi og við. Eftir 3 tíma bið og vesen komust þau að því að Bandaríkjamennirnir áttu ekki að koma fyrr en daginn eftir. Við fórum svo með sjálfboðaliðunum á aðalskrifstofu AFS í Lima þar sem við biðum í aðra 3 tíma. Eftir langa bið og frekar óþægilegar dottur (að dotta) komu krakkarnir frá Frakklandi og þá fórum við Guðbjartur, Thor frá Danmörku, Rógvi frá Færeyjum og Frakkarnir á staðinn þar sem komunámskeiðið var haldið.
Seint um kvöldið bættist heill hellingur við hópinn, m.a. 25 krakkar frá Belgíu, 18 krakkar frá Þýskalandi og 4 frá Tælandi. Á komunámskeiðinu sjálfu fórum við í allskonar leiki, hlustuðum á fyrirlestra um Perú, fengum afrit af vegabréfunum, fengum AFS boli, borðuðum góðan mat, fórum í sundlaugina (sem var ísköld) og höfðum líka frían tíma sem við notuðum til að kynnast krökkum frá öllum heimshornum. Þetta var mjög skemmtilegt og ég hlakka til að hitta alla aftur í lok ársins.
Á laugardaginn, eftir miklar myndatökur, var okkur svo skipt í hópa eftir borgum. Við erum fimm í Trujillo. Ég, Valerie frá Belgíu, Sonja frá Þýskalandi og svo Kan og Oy (borið fram Ó, kann ekki að skrifa það) frá Tælandi. Við fórum ásamt krökkum sem voru að fara til fleiri borga á einhversskonar Youth Hostel í Lima þar sem við biðum eftir að rútan til Trujillo færi. Klukkan 9 um kvöldið fórum við svo á rútustöðina og hoppuðum upp í rútu til Trujillo. Þetta var svona stærsta gerð af rútu. Á tveimur hæðum með mega stórum og þægilegum leðursætum sem hægt var að leggja næstum alveg niður. Við sváfum öll alla leiðina og komum svo til Trujillo klukkan 6 í morgun eftir 9 tíma ferðalag.
Þegar við komum á rútustöðina biðu fjölskyldurnar eftir okkur með skilti og á skiltinu sem mín fjölskylda var með stóð: Bienvenido Sigmar , Velkominn Sigmar. Þau sögðu mér svo að það hefði komið upp neyðartilvik og að þau þyrftu að fara í burtu í nokkra daga. Ég er því núna hjá sjálfboðaliða frá AFS sem býr við hliðina á yfirmanni AFS í Trujillo.
Þegar þetta er skrifað er ég nýkominn heim af fótboltaleik í Copa Perú þar sem Trujillo var að keppa við einhverja aðra borg. Fótbolti er greinilega mjög vinsæll hérna í Perú því þetta var næstum eins og í miðbæ Reykjavíkur á Mennigarnótt. Fyrir utan að þarna var allt morandi í vopnuðum lögreglumönnum. Ég beið allan fyrri hálfleik í röð fyrir utan leikvanginn. Allir voru að öskra og margir héldu á litlum útvörpum og hlustuðu á leikinn á meðan þeir biðu fyrir utan. Ég sá mann múta lögreglunni fyrir að koma sér framarlega í röðina. Mér fannst það frekar skrítið að sjá.
Nú er ég enginn sérfræðingur í fótbolta en ég held ég geti fullyrt að S-Amerískur fótbolti sé töluvert frábrugðinn Evrópskum fótbolta. Mér fannst leikurinn svo hraður og töluvert mikið meira um meiðsli hjá leikmönnum. Ég held ég hafi séð svona 8 gul spjöld og 2 rauð - og ég sá bara seinni hálfleik. Leikurinn endaði 3-2 fyrir liðinu sem ég held að hafi verið frá Trujillo. Eftir leikinn brutust út allsherjar slagsmál inni á vellinum. Þá hlupu 30 vopnaðir lögreglumenn með skildi inn á völlinn og stíaði fylkingunum í sundur. Það þurfti líka að halda skjöldunum uppi yfir dómurunm þegar þeir gengu af vellinum því fólk kastaði allskonar mat og ógeði að þeim. Allt í allt skemmtilegasti fótboltaleikur sem ég hef horft á :-) Því miður gleymdi ég myndavélinni svo þið fáið ekki að sjá neinar myndir frá fótboltaleiknum :-(
Á morgun skilst mér að við séum að fara að kaupa skólabúning handa mér. Það verður gaman að sjá hvort þeir eigi einhvern í minni stærð þar sem ég er a.m.k. höfðinu hærri en flest allir hérna. Svo förum við að skoða skólann á þriðjudaginn. Ég og Kan frá Tælandi förum í sama skóla.
Að lokum vil ég óska þeim sem nenntu að lesa þetta allt til hamingju með að vera komin á leiðarenda.
Chao!
þriðjudagur, 12. júlí 2011
Fjölskyldan
Nú er ég búinn að fá staðfestingu á fjölskyldu í Perú. Stelpan sem hafði samband við mig gegnum facebook heitir Carolina og ég mun vera hjá fjölskyldunni hennar í borginni Trujillo. Trujillo er borg í norðurhluta Perú, 560 km frá Lima.
Fjölskyldan samanstendur af Walter (pabbi), Rosa (mamma), Carolina (systir) og Zulema (systir). Walter og Rosa reka verslun en Walter er menntaður verkfræðingur. Carolina er í háskóla og Zulema í grunnskóla. Þau eiga hund og kött og ég fæ mitt eigið herbergi. Þau hafa tekið þrjá aðra skiptinema: Mathieu frá Belgíu, Lea frá Sviss og Sulian frá Þýskalandi. Enginn í fjölskyldunni reykir og á heimilinu er ekki heitt vatn og internet.
Ég fékk mynd af þeim sem ég get ekki "copy-að" (tæknilegir örðugleikar) en ég set eitthvað hérna inn um leið og ég finn út úr því.
-Sigmar
Fjölskyldan samanstendur af Walter (pabbi), Rosa (mamma), Carolina (systir) og Zulema (systir). Walter og Rosa reka verslun en Walter er menntaður verkfræðingur. Carolina er í háskóla og Zulema í grunnskóla. Þau eiga hund og kött og ég fæ mitt eigið herbergi. Þau hafa tekið þrjá aðra skiptinema: Mathieu frá Belgíu, Lea frá Sviss og Sulian frá Þýskalandi. Enginn í fjölskyldunni reykir og á heimilinu er ekki heitt vatn og internet.
Ég fékk mynd af þeim sem ég get ekki "copy-að" (tæknilegir örðugleikar) en ég set eitthvað hérna inn um leið og ég finn út úr því.
-Sigmar
fimmtudagur, 7. júlí 2011
Ferðaáætlun
Góðan daginn,
Í dag fékk ég ferðaáætlunina mína í hendurnar. Ég fer miðvikudaginn 7. september frá Keflavík klukkan 17:00. Þaðan flýg ég á John F. Kennedy flugvöllinn í New York og lendi þar klukkan 19:00, staðartíma. Ég fer svo aftur frá New York klukkan 23:15 og lendi á flugvellinum í Lima, Perú, klukkan 06:10, staðartíma fimmtudaginn 8. september. Þetta er sem sagt frekar langt ferðalag, enda er ég næstum að fara að ferðast yfir hálfan hnöttinn. Þegar ég lendi í Lima verður klukkan 11:10 á Íslandi og ferðalagið tekur því tæpan sólarhring.
Ég hef ekkert heyrt frá AFS varðandi fjölskyldu í Perú en stelpa frá borg sem heitir Trujillo hafði samband við mig á facebook og sagðist vera tilvonandi fóstursystir mín. Mér skilst að það sé ekkert óalgengt að fjölskyldurnar viti af skiptinemunum áður en skiptinemarnir viti af þeim. Þannig að það eru frekar miklar líkur á að ég verði í Trujillo sem er þriðja stærsta borgin í Perú en þar búa um 800.000 manns. Aðeins meira en við erum vön á Íslandi.
Meira verður það ekki í bili,
Bæ bæ
Í dag fékk ég ferðaáætlunina mína í hendurnar. Ég fer miðvikudaginn 7. september frá Keflavík klukkan 17:00. Þaðan flýg ég á John F. Kennedy flugvöllinn í New York og lendi þar klukkan 19:00, staðartíma. Ég fer svo aftur frá New York klukkan 23:15 og lendi á flugvellinum í Lima, Perú, klukkan 06:10, staðartíma fimmtudaginn 8. september. Þetta er sem sagt frekar langt ferðalag, enda er ég næstum að fara að ferðast yfir hálfan hnöttinn. Þegar ég lendi í Lima verður klukkan 11:10 á Íslandi og ferðalagið tekur því tæpan sólarhring.
Ég hef ekkert heyrt frá AFS varðandi fjölskyldu í Perú en stelpa frá borg sem heitir Trujillo hafði samband við mig á facebook og sagðist vera tilvonandi fóstursystir mín. Mér skilst að það sé ekkert óalgengt að fjölskyldurnar viti af skiptinemunum áður en skiptinemarnir viti af þeim. Þannig að það eru frekar miklar líkur á að ég verði í Trujillo sem er þriðja stærsta borgin í Perú en þar búa um 800.000 manns. Aðeins meira en við erum vön á Íslandi.
Meira verður það ekki í bili,
Bæ bæ
þriðjudagur, 21. júní 2011
Fyrsta bloggið
Jæja, þá er ég búinn að búa til bloggsíðu svo þið getið fylgst með mér í Perú. Ég fer í kringum 1. september, held ég... Ég er ekki "formlega" kominn með fjölskyldu en stelpa frá Perú hafði samband við mig í gegnum facebook og sagðist vera tilvonandi fóstursystir mín. Ég veit ekkert mikið um þau ennþá en ég veit að þau búa í bænum Trujillo í Perú sem er u.þ.b. 800.000 manna borg. Ég set meiri upplýsingar um þau þegar og ef ég fæ staðfestingu frá AFS um að ég sé að fara til þeirra. Meira hef ég ekki að segja í bili.
-Sigmar
-Sigmar
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)