þriðjudagur, 21. júní 2011

Fyrsta bloggið

Jæja, þá er ég búinn að búa til bloggsíðu svo þið getið fylgst með mér í Perú. Ég fer í kringum 1. september, held ég... Ég er ekki "formlega" kominn með fjölskyldu en stelpa frá Perú hafði samband við mig í gegnum facebook og sagðist vera tilvonandi fóstursystir mín. Ég veit ekkert mikið um þau ennþá en ég veit að þau búa í bænum Trujillo í Perú sem er u.þ.b. 800.000 manna borg. Ég set meiri upplýsingar um þau þegar og ef ég fæ staðfestingu frá AFS um að ég sé að fara til þeirra. Meira hef ég ekki að segja í bili.

-Sigmar